image
image

Afgreiðslufrestur

Allar vörur sem pantaðar eru á Púkk.is eru afgreiddar samdægurs eða næsta dag.
Ath. spilið kemur ekki til Íslands fyrr en 6. desember og verður sent um leið og það verður tilbúið til afgreiðslu.

 

Afhending

Vörur sem pantaðar eru á Púkk.is er hægt að fá sendar með Íslandspósti eða sækja í Hafnarfjörð, Álfaskeið 47, virka daga eftir kl.17 eða um helgar eftir samkomulagi, fleiri upplýsingar í síma: 896-0848

 

Sendingarkostnaður

Það er flatt gjald á heimsendingarkostnaði innanlands og kostar það 1.750,- kr.
Ef valið er pósthús, þá sendist spilið á næsta pósthús við uppgefið heimilisfang. 
Einnig bíður Púkk.is uppá skutl innan höfuðborgarsvæðissins og þá berst spilið innan 3 daga eða eftir samkomulagi.

Undirbúningur

PÚKK spilaborðið, PÚKK spilapeningar skipt jafnt á milli leikmanna og PÚKK spilastokkurinn með fjarlægðum hundunum. 7 reitir eru á spilaborðinu og velur hver sinn reit til að klæða í hverri umferð. Ef leikmenn eru fleirri eða færri en reitirnir er hægt að deila því upp að fleirri klæða sama reitinn eða setji í púkkið.

Klæða

Allir klæða sinn reit með fimm spilapeningum og henda líka einum í púkkið. Ef sjö spila þá setur sá sem klæðir púkkið sína fimm og einn að auki. Allir verða að klæða sinn reit í upphafi hverrar umferðar, þrátt fyrir að ekki hafi verið tekið af honum í seinustu umferð, og hann getur því verið tví-, þrí- eða margklæddur.

Hirða

Skipst er á hver er gjarfar hverrar umferðar og alltaf er spilað í átt sólarhringsins, byrjað á fyrsta leikmanni á vinstri hönd gjafarans. Oft er yngsti leikmaður valinn sem fyrsti gjafari spilsins. Gefin eru fimm spil á hvern leikmann, eitt í einu og síðan er efsta spilinu snúið við og það er tromp umferðarinnar. Þá hirða þeir til sinn vinninginn sem er á þeim reit sem passar við trompuð háspil þeirra. Eins og t.d. ef upp kemur hjarta sem tromp, þá tekur sá sem er með hjartaásinn til sín þá peninga sem eru á reit ásins. Ef lauf er tromp, þá tekur sá sem er með laufgosann bæði tekið til sín peningana af reit gosans og laufgosans.

Púkk

Nú er spilað um púkkið með því að keppa um hver er með hæðstu samstæðurnar. Leikmenn tilkynna nú hvort þeir vilji spila um pottinn eða ei, ef þeir eru með, þá setja þeir einn pening í púkkið. Fyrsti leikmaður á vistri hönd gjafara byrjar. Hæðstu spilin eru fimmurnar, sem eru kallaðir póstar, svo ásar, svo kóngar og koll af kolli niður í sexur eða lægsta spil. Hærri samstæður vinna spilið, þ.e.a.s. 3 eins vinna 2 eins o.s.frv. Ef eins samstæður eru í keppni á móti hvor annari, þá ræður litaröð sigrinum. Litaröðin er: Hjarta, spaði, tígull, lauf. Laufagosinn, sem kallast pamfíll, gildir allt er því hægt að nota til búa til par eða stækka samstæðuna sína. Ef eins samstæður keppa á móti hvor annari, en önnur er með laufagosa, þá vinnur hin sem saman er sett úr "alvöru" spilum. Þ.e.a.s. Kónga par vinnur Kóng og Laufgosa.

Rekja

Nú þarf að spila spilunum út og vinnur sá sem fyrstur klárar spil sín af hendi. Leikmaður á vinstri hönd við gjafara er í forhönd og byrjar á að setja út spil að eigin vali. Leikmenn rekja þá upp sortina með því að raða sínum spilum ofan á, í réttri röð og lit, þangað til að engin á það spil sem kemur næst, því engin fékk það á hendi við upphaf spils er gefið var, þá stendur spilið og sá sem átti seinasta spilið á að gera aftur. Svona er spilað þar til einn klárar öll sín spil og kallar „trekki!“.

Uppgjör

Sá sem trekkir fær nú jafnmarga peninga frá hverjum spilamanni og hann á eftir á hendi. Ef einhver leikmaður gat sett næsta á eftir spilinu sem var trekkt með, þá þarf sá leikmaður ekki að borga fyrir það. Gjafari tekur saman spilin og réttir næsta gjafara á vinstri hönd, svo næsta umferð geti hafst.

Translation missing: en.general.search.loading