image
image

Þátttakendur: Lágmark 2
Aldurshópur: Allur aldur
Spilatími: Hægt er að velja spilatíma eða ákveða það að hætta er ákveðin fjöldi leikmanna er eftir, eins og t.d. þegar þrír eru eftir og þá er eigið fé talið og ríkasti leikmaðurinn vinnur.
Markmið: Sá vinnur sem á flesta spilapeninga í lok spils.
Aukasjóður: Hægt er að hafa aukasjóð sem hægt er að fá lánað úr ef gæfan er ekki hliðholl á spilatímanum, en einnig er hægt að fá lánað hjá öðrum spilurum.
Aðrar spilareglur: Þar sem Púkk er gamalt spil, þá eru til mismunandi útgáfur af reglunum, en það virðist aðallega breyta hversu margir hundar eru fjarlægðir úr stokknum, lægstu spilin ættu þó alltaf að vera póstarnir.

Hundar: Hundar eru auka spilin sem fjarlægð eru úr spilastokknum sem spilað er með, oftast Tvistar, Þristar og Fjarkar.
Klæða: Setja spila peninga á þann reit sem er tileinkaður hverjum leikmanni.
Pamfíll: Laufagosinn er wild card spilsins eða "allt", þegar spilað er um púkkið. Handhafi laufgosans er líka lukkunar pamfíll, sérstaklega ef lauf er tromp, því þá tekur vinninginn af gosa reitnum og laufagosa reitnum.
Póstar: Póstarnir eru hæðstu spilin þegar spilað er um púkkið og ræðst af því hvað eru lægstu númeruðu spilin í stokknum.
Púkka: Þeir "púkka" sem taka taka þátt er spilað er um púkkið.
Rekja: Þegar spilin eru rakin, þá er sett næsta spil í sömu sort ofan á og sortin rakin upp þar til spilið "stendur".
Stendur: Þegar næsta spil á eftir niðurlögðu spili er ekki á hendi leikmanna, þá stendur spilið og seinasti leikmaður, sem átti spilið sem spilið stendur á, fær að setja næsta spil að eigin vali.
Trekkja: Sá trekkur sem er fyrstur að klára spil sín af hendi og kallar hann "Trekki" til að láta hina vita að hann sé búinn.

Undirbúningur

PÚKK spilaborðið, PÚKK spilapeningar skipt jafnt á milli leikmanna og PÚKK spilastokkurinn með fjarlægðum hundunum. 7 reitir eru á spilaborðinu og velur hver sinn reit til að klæða í hverri umferð. Ef leikmenn eru fleirri eða færri en reitirnir er hægt að deila því upp að fleirri klæða sama reitinn eða setji í púkkið.

Klæða

Allir klæða sinn reit með fimm spilapeningum og henda líka einum í púkkið. Ef sjö spila þá setur sá sem klæðir púkkið sína fimm og einn að auki. Allir verða að klæða sinn reit í upphafi hverrar umferðar, þrátt fyrir að ekki hafi verið tekið af honum í seinustu umferð, og hann getur því verið tví-, þrí- eða margklæddur.

Hirða

Skipst er á hver er gjarfar hverrar umferðar og alltaf er spilað í átt sólarhringsins, byrjað á fyrsta leikmanni á vinstri hönd gjafarans. Oft er yngsti leikmaður valinn sem fyrsti gjafari spilsins. Gefin eru fimm spil á hvern leikmann, eitt í einu og síðan er efsta spilinu snúið við og það er tromp umferðarinnar. Þá hirða þeir til sinn vinninginn sem er á þeim reit sem passar við trompuð háspil þeirra. Eins og t.d. ef upp kemur hjarta sem tromp, þá tekur sá sem er með hjartaásinn til sín þá peninga sem eru á reit ásins. Ef lauf er tromp, þá tekur sá sem er með laufgosann bæði tekið til sín peningana af reit gosans og laufgosans.

Púkk

Nú er spilað um púkkið með því að keppa um hver er með hæðstu samstæðurnar. Leikmenn tilkynna nú hvort þeir vilji spila um pottinn eða ei, ef þeir eru með, þá setja þeir einn pening í púkkið. Fyrsti leikmaður á vistri hönd gjafara byrjar. Hæðstu spilin eru fimmurnar, sem eru kallaðir póstar, svo ásar, svo kóngar og koll af kolli niður í sexur eða lægsta spil. Hærri samstæður vinna spilið, þ.e.a.s. 3 eins vinna 2 eins o.s.frv. Ef eins samstæður eru í keppni á móti hvor annari, þá ræður litaröð sigrinum. Litaröðin er: Hjarta, spaði, tígull, lauf. Laufagosinn, sem kallast pamfíll, gildir allt er því hægt að nota til búa til par eða stækka samstæðuna sína. Ef eins samstæður keppa á móti hvor annari, en önnur er með laufagosa, þá vinnur hin sem saman er sett úr "alvöru" spilum. Þ.e.a.s. Kónga par vinnur Kóng og Laufgosa.

Rekja

Nú þarf að spila spilunum út og vinnur sá sem fyrstur klárar spil sín af hendi. Leikmaður á vinstri hönd við gjafara er í forhönd og byrjar á að setja út spil að eigin vali. Leikmenn rekja þá upp sortina með því að raða sínum spilum ofan á, í réttri röð og lit, þangað til að engin á það spil sem kemur næst, því engin fékk það á hendi við upphaf spils er gefið var, þá stendur spilið og sá sem átti seinasta spilið á að gera aftur. Svona er spilað þar til einn klárar öll sín spil og kallar „trekki!“.

Uppgjör

Sá sem trekkir fær nú jafnmarga peninga frá hverjum spilamanni og hann á eftir á hendi. Ef einhver leikmaður gat sett næsta á eftir spilinu sem var trekkt með, þá þarf sá leikmaður ekki að borga fyrir það. Gjafari tekur saman spilin og réttir næsta gjafara á vinstri hönd, svo næsta umferð geti hafst.

Translation missing: en.general.search.loading